Úrslit Reykjavíkurmeistaramót 9-12ára

Hér koma úrslit úr Reykjavíkurmeistarmóti 9-12 ára stórsvig sem haldið var í Skálafelli 14. apríl

9 ára drengir

9 ára stúlkur

10 ára drengir

10 ára stúlkur

11 ára strákar

11 ára stúlkur

12 ára strákar

12 ára stúlkur

Posted in Ýmislegt | Comments Off

Staða eftir fyrri ferð Icelandaircup 5. apríl

Staða eftir fyrri ferð – Karlar Icelandair cup

Staða eftir fyrri ferð konur

Posted in Ýmislegt | Comments Off

Skilaboð til starfsmanna

Á morgun skírdag verður haldið stórsvigsmót í Skálafelli.  Brautarskoðun hefst 09.45 og fyrsti keppandi verður ræstur kl. 10.30.

Brautarstarfsmenn eru beðnir um að mæta klukkan 07.00 og portverðir þurfa að vera mættir kl. 09.00 í skálann við lyftuna. Ef aðstæður bjóða ekki upp á stórsvigsmót verður reynt að halda svigmót í sömu brekku í staðinn.  Upplýsingar verða einnig lesnar inn á símsvarann 878-1005 og uppfærðar á facebook síðunni.

Posted in Ýmislegt | Comments Off

Úrslit og bein útsending

Nú er fyrsta svigmótinu lokið. Sigurvegarar urðu Katrín Kristjánsdóttir frá Akureyri í kvennaflokki og Sturla Snær Snorrason úr Reykjavík í karlaflokki.  Heildarúrslit allra mótanna er að finna á þessari vefslóð: http://www.fis-ski.com/uk/604/1228.html?event_id=30984&cal_suchsector=AL.

Mótin eru send út í beinni útsendingu á FIS síðunni:  http://www.fis-ski.com/uk/disciplines/live-timing/alpineskiing.html

Í dag er áætlað að keppni hefjist kl. 16.30 með fyrri ferð kvenna. Karlarnir fylgja svo eftir skömmu síðar.

 

Posted in Ýmislegt | Comments Off

Live timing fyrri ferð karla svig í Bláfjöllum. 3.apríl 2012. Icelandair cup

http://live.fisski.com/live737.htm

Posted in Ýmislegt | Comments Off

Live timing seinni ferð kvenna svig í Bláfjöllum. 3.apríl 2012. Icelandair cup

http://live.fisski.com/live5701.htm

Posted in Ýmislegt | Comments Off

Fararstjórafundur/Team Captains Meeting 03.04.2012.

Fararstjórafundur vegna Icelandair Cup verður haldinn í Henglinum í Bláfjöllum þriðjudaginn 3. apríl kl. 14.00.  Brautarskoðun hefst kl. 15.45 og keppni kl. 16.30.

Team Captains Meeting for Icelandair Cup is today in Bláfjöll, at Hengill Cabin (skihut of ÍR and Vikingur). It commences at 14.00 hrs.  Inspection is at 15.45 and first racers starts at 16.30 hrs.

 

Posted in Ýmislegt | Comments Off

Mótsboð Icelandair Cup 3. til 5. apríl 2012

Skíðaráð Reykjavíkur býður til Icelandair Cup mótaraðarinnar 3. til 5. apríl. Keppt verður tvisvar í svigi í Bláfjöllum og einu sinni í stórsvigi í Skálafelli. Skráningarfrestur er 30. mars og er aðildarfélögum bent á að skila skráningum inn á FIS skráningarblaði á motaskraning.skrr@gmail.com. Dagskrá mótsins má finna hér.

SKRR invites hereby to Icelandair Cup FIS races held in Reykjavik during April 3rd to April 5th 2012. There will be two slalom races and one giant slalom race. The invitation with a priliminary agenda has been published on SKRR website, www.skrr.is.
Registrations should be no later than Friday March 30th to motaskraning.skrr@gmail.com. All registrations should be sent on official FIS registration forms

Posted in Ýmislegt | Comments Off

Bikarmót SKÍ í Skálafelli 17. og 18. mars 2012

Skíðaráð Reykjavíkur býður til bikarmóts SKÍ í Reykjavík dagana 17. og 18. mars. Á föstudeginum verður fararstjórafundur í húsnæði ÍSÍ í Laugardal.

Dagskráin er fyrirhuguð sem hér segir:

Föstudagurinn 16. mars

  • Kl. 20.00  Fararstjórafundur í Laugardal

 Laugardagurinn 17.mars – bikarmót SKÍ Skálafell

  • Kl. 11.00  Stórsvig konur og karlar – fyrri ferð
  • Kl. 13.00  Stórsvig konur og karlar – síðari ferð
  • Verðlaunaafhending og fararstjórafundur að loknu móti

Sunnudagurinn 18.mars – bikarmót SKÍ Skálafelli

  • Kl. 10.30  Stórsvig konur og karlar – fyrri ferð
  • Kl. 12.30  Stórsvig konur og karlar – síðari ferð
  • Verðlaunaafhending að loknu móti

Dagskráin mun taka breytingum eftir því sem aðstæður breytast. Upplýsingar þar um birtast á www.skrr.is.

Uppfærðar þátttökutilkynningar á FIS skráningarblaði með gildu FIS númeri keppenda skulu berast til motaskraning.skrr@gmail.com í síðasta lagi miðvikudaginn 14.mars nk.

 

Með skíðakveðju,

Skíðaráð Reykjavíkur

Posted in Ýmislegt | Comments Off

Bikarmóti 10. og 11. mars hefur verið frestað

Bikarmóti SKI sem vera átti 10. og 11. mars hefur verið frestað vegna óhagstæðrar veðurspár. Búist er við ríkjandi sunnan og vestan vindum með verulegri úrkomu báða dagana. Í ljósi þess verður reynt að halda tvö stórsvigsmót á sama stað eftir viku.

Posted in Ýmislegt | Comments Off